Íþróttastarf í Hafnarfirði

ISAL er stolt af samstarfi sínu við íþróttafélögin í Hafnarfirði. Fyrirtækið styður myndarlega við barna- og unglingastarf félaganna og sérstakur samningur við Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH), sem er samstarfsvettvangur allra íþróttafélaga í bænum, tryggir jafnræði milli félaganna og stuðlar að aukinni fagmennsku.

Samkvæmt gildandi samningi greiðir ISAL 9 milljónir króna til ÍBH, sem skiptir upphæðinni milli aðildarfélaga sinna. Miðað er við að 60% af heildarupphæð samningsins skiptist eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en 40% er skipt samkvæmt menntunarstigi þeirra sem sinna þjálfun og fræðslu á vegum félaganna. Þá er horft til ýmissa námskeiða sem tengjast íþróttaþjálfun; menntunarstiga ÍSÍ og sérsambanda innan íþróttahreyfingarinnar, íþróttakennaramenntunar, þjálfaranáms á háskólastigi o.fl.

Með þessu er ætlunin að hvetja til faglegra vinnubragða á sem flestum sviðum barna- og unglingastarfsins og tryggja þannig ánægju iðkendanna og aðstandenda þeirra.

Þessi félög njóta góðs af stuðningi Alcan við íþróttastarfið í Hafnarfirði:

  • Haukar
  • FH
  • Fimleikafélagið Björk
  • Golfklúbburinn Keilir
  • Sundfélag Hafnarfjarðar
  • Siglingaklúbburinn Þytur
  • Hestamannafélagið Sörli
  • Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar
  • Íþróttafélagið Fjörður
  • Badmintonfélag Hafnarfjarðar
A- A+