Öryggið ofar öllu

Öryggismál eru stórmál í okkar augum, enda ekkert mikilvægara en að starfsmenn komist heilir frá vinnu.  Sterk öryggisvitund hefur fest sig í sessi hjá okkar fólki og árangur þess á undanförnum árum er hreint út sagt frábær. 

Með jákvæðum viðhorfum og hópstarfi hefur tekist að gera öryggismál að órjúfanlegum hluta að öllum daglegum störfum. Markviss fræðsla, áhættugreiningar og mælingar á árangursvísum eru stöðugt í endurskoðun og náið samstarf við systurfyrirtæki okkar erlendis veitir okkur mikilvægan stuðning.  Innan samsteypunnar er unnið eftir sameiginlegri aðferðafræði sem kallast EHS FIRST, en hún snýst um að setja ávallt umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismál í öndvegi.

Alcan í Straumsvík hefur um árabil verið í fararbroddi á sviði öryggismála á Íslandi og okkar starfsfólk hefur unnið mikið frumkvöðlastarf.  Það gerir miklar kröfur til sjálfs sín og hvers annars, verktaka sem starfa á svæðinu og líður ekki brot á öryggisreglum. Árangur undanfarinna ára sýnir svart á hvítu hve samtakamátturinn er mikill þegar allir leggjast á eitt.

 

 

 

 

 

Öryggisstjórnun

  • Við erum eina fyrirtækið á Íslandi með öryggisstjórnun sem stenst hinn alþjóðlega öryggisstaðal OHSAS 18001. 
  • OHSAS 18001 staðallinn er kröfulýsing á sviði öryggis- og vinnuumhverfisstjórnunar.  Fyrirtæki sem starfa skv. staðlinum þurfa sífellt að vinna að umbótum og eru líklegri en önnur til að ná árangri.
  • Staðallinn á meðal annars að tryggja, að öryggis- og vinnuumhverfismál séu órjúfanlegur þáttur í mats- og ákvörðunarferli við fjárfestingar, framkvæmdir, rekstur, val á verktökum og kaup á vöru og þjónustu vegna starfseminnar.