Fyrirtækið
Alcan á Íslandi hf. er hluti af Rio Tinto Alcan, fjölþjóðlegu fyrirtæki sem er stærsti álframleiðandi í heimi. Við erum stolt af því að tilheyra þessari öflugu samsteypu. Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um fyrirtækið.
Vissir þú?
Við erum einn stærsti útflytjandi af vörum frá Íslandi.
Samfélagssjóður Alcan
Fréttir
26.08.2010
Fjórðungur starfsmanna hljóp og safnaði milljón
Rio Tinto Alcan afhenti í dag eina milljón króna í styrki til góðgerðamála. Styrkirnir voru veittir í tengslum við þátttöku starfsmanna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, en alls hlupu starfsmenn álversins um það bil 1.000 kílómetra.Meira
Áhrif brunans í Straumsvík
Búið að ráða niðurlögum elds
Álverið í Straumsvík hlýtur öryggisviðurkenningu forstjóra Rio Tinto
Rio Tinto Alcan og Landsvirkjun semja um orkukaup til ársins 2036
7,5 milljónum úthlutað úr Samfélagssjóði Alcan
FréttasafnÖryggismál eru stórmál í okkar augum, enda ekkert mikilvægara en að starfsmenn komist heilir frá vinnu. Sterk öryggisvitund hefur fest sig í sessi hjá okkar fólki og árangur þess á undanförnum árum er hreint út sagt frábær.
Við erum eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi með öryggisstjórnun sem stenst hinn alþjóðlega öryggisstaðal OHSAS 18001.
OHSAS 18001 staðallinn er kröfulýsing á sviði öryggis- og vinnuumhverfisstjórnunar. Fyrirtæki sem starfa skv. staðlinum þurfa sífellt að vinna að umbótum og eru líklegri en önnur til að ná árangri.
Staðallinn á meðal annars að tryggja, að öryggis- og vinnuumhverfismál séu órjúfanlegur þáttur í mats- og ákvörðunarferli við fjárfestingar, framkvæmdir, rekstur, val á verktökum og kaup á vöru og þjónustu vegna starfseminnar.
Í umhverfismálum setjum við okkur metnaðarfull markmið og höfum náð mjög góðum árangri. Við eigum samleið með þeim sem vilja hag umhverfisins sem mestan og teljum að í víðu samhengi sé ál umhverfisvænn málmur, sérstaklega þar sem endurnýtanlegir orkugjafar eru nýttir til framleiðslunnar.
Í grænu bókhaldi er að finna ýmsar lykiltölur sem snúa að frammistöðumati fyrirtækisins í umhverfismálum: Grænt bókhald 2008
Alcan er eitt fárra fyrirtækja á Íslandi sem hefur starfsmann í fullu starfi við að sinna heilsu- og heilbrigðismálum starfsmanna, auk þess sem trúnaðarlæknir fyrirtækisins hefur aðstöðu á svæðinu þangað sem starfsmenn geta leitað. Þessi áhersla endurspeglar stefnu fyrirtækisins í umhverfis-, heilbrigðis og öryggismálum en þá málaflokka teljum við náskylda og mikið samstarf er milli aðila sem sinna þeim.
Í heilbrigðismálum er áhersla lögð á vinnuverndarmál af ýmsum toga og með markvissum hætti er starfsfólk hvatt til að hugsa um heilsuna. Umfangsmikið heilsuátak varð t.d. kveikjan að breyttum lífsstíl hjá mörgum starfsmönnum og viðurkenningar frá opinberum aðilum sýna að árangurinn vekur athygli í samfélaginu. Meðal annars má nefna viðurkenningu frá Vinnueftirliti ríkisins fyrir góðan árangur í vinnuverndarmálum og Fjöreggið sem Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands afhendir fyrir góðan árangur á þessu sviði.